Veisluþjónusta fyrir árshátíðir

Smáréttaveisla, grænkeravænn smáréttaseðill eða þriggja rétta matseðill fyrir árshátíð, starfsmannaveislu eða fyrirtækjaboð.
Sendu fyrirspurn og fáðu tilboð fyrir vinnustaðinn.

Veisluseðlar

Smáréttaseðlar og þriggja rétta matseðlar fyrir árshátíðina með verði á mann. Hægt að aðlaga að fæðuóþoli og sérþörfum.

Smáréttaveisla

4.190 kr. á mann

  • Mini hamborgarar með chili majónesi
  • Humar á blómkálsmauki með trufflum og graslauk
  • Kjúklingaspjót með hvítlaukssósu
  • Beikonvafðar döðlur með sweet chili sósuÁ salatbeði
  • Snitta með chili-rjómaostakjúklingiKlettasalat og ferskur parmesanostur
  • Risarækjur á spjóti með mangó-jalapenosósu
  • Frönsk súkkulaðikaka með jarðarberjum

Grænkeravænn smáréttaseðill

4.100 kr. á mann

Vegan · kemur tilbúið á svörtum veislubökkum · enginn kokkur

  • Grillað toppkál með misó
  • Grillaðir tómatar með basil mayoÁ grilluðu súrdeigsbrauði
  • Rauðrófutartar með balsamik og sólseljuÁ grilluðu súrdeigsbrauði
  • Seljurótarþynnur „carpaccio“Saltbakaðar og grillaðar, með túrmerik-sítrónu mayo og rúsínusalsa
  • Villisveppa arancini með basil mayo
  • Mini portobello borgariPonzu, trufflumayo og karamelluð gráfíkja
  • Innbökuð sæt kartafla með hlynsírópi og chili
  • Gulrótar- og valhnetukaka

3ja rétta seðill #1

10.990 kr. á mann

Miðast við 40 manns eða fleiri

Forréttur

  • LambatartarVilltar íslenskar jurtir, feta-tzatziki krem, sýrður rauðlaukur, grillaðir súrdeigsbrauðteningar og spicy fræmix

Aðalréttur

  • Grilluð nautalundFlauelsmjúkar kartöflur með parmesan, brúnað laukkrem, steikt blaðkál með rifnum osti og nautasoðgljái

Eftirréttur

  • Toffee gochujang brownieMeð skyrkremi

3ja rétta seðill #2

10.990 kr. á mann

Miðast við 40 manns eða fleiri

Forréttur

  • Grafinn og reyktur laxEpla- og hnúðkálsremúlaði, wasabi og epla- og dillvínagretta, toppað með kryddjurtum

Aðalréttur

  • Steikt lamba-ribeyeRöstí kartafla, misógrillað kál, brúnað seljurótarkrem, sýrður skarlottulaukur og sítrónu-blóðbergsgljái

Eftirréttur

  • Karamellu-súkkulaðimúsMeð lakkrísbitum og ástaraldinsósu

3ja rétta seðill #3

11.990 kr. á mann

Miðast við 40 manns eða fleiri

Forréttur

  • Steiktur humarhaliJarðskokkakrem, sýrt fennelsalat með túrmerik, krydduð epli og grænn aspas velouté, toppað með mjölbananakrispi með chili

Aðalréttur

  • Steikt andabringaRauðrófu-„toffee“, sætkartöflukrem, grillaður aspas, sýrð rauðrófuhreðka og kjúklinga-madeira soðgljái

Eftirréttur

  • GulrótarkakaMeð bökuðu hvítsúkkulaðikremi

Matur fyrir árshátíðina

Góð árshátíð byrjar á góðum mat. Bragðlaukar bjóða fyrirtækjum og starfsmannafélögum á höfuðborgarsvæðinu veitingar fyrir árshátíðir, allt frá smáréttaveislu þar sem gestir blanda geði til þriggja rétta matseðils með forrétti, aðalrétti og eftirrétti. Þriggja rétta seðlarnir miðast við 40 gesti eða fleiri. Við aðlögum seðlana að fæðuóþoli og sérþörfum og setjum saman sérsniðinn matseðil fyrir hópinn ef þess er óskað. Vantar ykkur líka sal? Bragðlaukar leigja út veislusal í Kópavogi.

Ekki viss hvaða seðill hentar?

Segðu okkur frá tilefninu, dagsetningu og fjölda gesta og við setjum saman tillögu sem passar – líka fyrir fæðuóþol og sérþarfir.