Veisluþjónusta fyrir allar veislur

Við sjáum um veitingarnar svo þú getir notið veislunnar.
Veldu tilbúinn veisluseðil eða fáðu veisluna sérsniðna að tilefninu, fjölda gesta og sérþörfum.

Veisluseðlar eftir tilefni

Afmæli, árshátíð, ferming eða brúðkaup? Veldu tilefnið og skoðaðu veisluseðla sem henta þinni veislu.

Afmæli & útskriftir

Smáréttir, tacoveisla, steikarveislur og grænkeraveisla fyrir afmælis- og útskriftarveislur, tilbúið á veisluborðið.

Árshátíðir

Smáréttaveisla eða þriggja rétta matseðill fyrir árshátíðir, starfsmannaveislur og fyrirtækjaboð.

Fermingar

Þrír fermingarseðlar með smáréttum, spjótum, snittum og eftirréttum fyrir 50 gesti eða fleiri.

Kringlótt borð við glugga með útsýni

Brúðkaup

Forréttir, aðalréttir og meðlæti fyrir brúðkaupsveislur með 50 gestum eða fleiri.

Grísaspjót með stökkum flögum

Smáréttaveislur

Smáréttir og pinnamatur fyrir móttökur, boð og veislur: spjót, snittur og sætir bitar.

Veisluþjónusta frá Bragðlaukum í Kópavogi

Bragðlaukar bjóða veisluþjónustu fyrir fyrirtæki, félög og einstaklinga á höfuðborgarsvæðinu. Hvort sem tilefnið er afmæli, útskrift, ferming, brúðkaup eða árshátíð finnur þú veisluseðil sem hentar, frá smáréttum til steikarveislu og þriggja rétta matseðils. Flestir seðlar koma tilbúnir á bökkum beint á veisluborðið. Við tökum tillit til fæðuóþols og bjóðum grænkeraseðla. Sendu okkur fyrirspurn og við gerum þér tilboð.

Ekki viss hvaða veisla hentar?

Segðu okkur frá tilefninu, dagsetningu og fjölda gesta og við setjum saman tillögu sem passar – líka fyrir fæðuóþol og sérþarfir.